Veitingastaðurinn Ráin opnaði árið 1989 og er einn glæsilegasti veitingastaðurinn í Keflavík, með fagurt útsýni á upplýst Bergið og yfir sjóinn í átt til Reykjavíkur.
Ráin getur nú tekið um 300 manns í sæti í tveimur veitingasölum eftir breytingar sem voru gerðar í lok ársins 1999. Um helgar er leikin lifandi tónlist og fá matargestir frían aðgang að dansleik.
Við fögnum þér og vonum að þú njótir gestrisni okkar.